Viðurkenningar

Ýmsar viðurkenningar

Brunnhóll hefur hlotið hlotið nokkrar viðurkenningar fyrir starfssemi sína

 

Það fer vel á að vekja með formlegum hætti athygli á því sem vel er gert.  Að fá klapp á bakið er öllum nauðsynlegt og getur skipt sköpum fyrir viðkomandi sem oft eru að vinna að verkefnum, þar sem árangur er kannski ekki svo mælanlegur.

En besta viðurkenningin felst þó í ánægðum gestum sem koma aftur og aftur.

 

Better business

Better buisness hnappurÁrið 2008 ákvað Ferðaþjónusta bænda að að fara í samstarf við fyrirtækið Better Business sem sérhæfir sig í „hulduheimsóknum“ (á ensku: Mystery Shooping). Þetta er verkefni til 3ja ára en það voru alls 22 ferðaþjónustubæir sem tóku þátt í verkefninu sumarið 2008. Markmiðið var að hver bær fengi þrjár heimsóknir og tókst það í mörgum tilfellum. Vegna mikilla bókana á nokkrum staðanna gekk erfiðlega að fá gistingu þar og fengu því ekki allir 3 heimsóknir.

Fimm bæjum voru veitt sérstök viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur en þeir fengu heildareinkunn yfir 8,5 og telst það vera mjög góður árangur. Brunnhóll á Mýrum í Hornafirði er einn þessara bæja.  Smellið á myndina til að sjá viðurkenningarskjalið. 

 

Green Globe vottun

GGsilver2009 hnappurGreen Globe eru alþjóðleg umhverfisvottunarsamtök sem stuðla að sjálfbærari ferðaþjónustu á meðal neytenda, fyrirtækja og samfélaga.  Vottunin byggir á Dagskrá 21 og hugmyndafræði um sjálfbæra þróun.  Skrifstofa Ferðaþjónustu bænda og nokkrir félagar hafa gengið til liðs við Green Globe og vinna þannig á markvissan hátt að umhverfismálum.

Brunnhóll á Mýrum í Hornafirði er einn þessara bæja.  Smellið á myndina til að sjá viðurkenningarskjalið.

Vegna umtalsverðra breytinga á starfssemi Green Globe (Earth ? )  hættum við þáttöku í verkefninu en vinnum eftir sem áður í anda sjálfbærrar þróunar og vinnum af metnaði að umhverfismálum eins  og fyrr.

 

 

Viðurkenning frá Búnaðarsambandi Austur-Skaftafellssýslu

 

 dsfasdyrehsareer    Smellið hér til að sjá skjalið

 


 
Brunnhólskirkja Kýrnar á Brunnhól Hvalbein i fjörunni Jöklaís
Þetta vefsvæði byggir á Eplica