Umhverfisstefna

Sjálfbærnistefna

Brunnhóll á Mýrum

Kýrnar á BrunnhólGullkorn

Ef þú hugsar eitt ár fram í tímann, sáðu þá fræi.

Ef þú hugsar tíu ár fram í tímann, plantaðu þá tré.

Ef þú hugsar hundrað ár fram í tímann, uppfræddu þá fólkið.

                                                         Kínverskt ljóð, 500 f. Krist

 

Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli er gisti- og veitingastaður með einstaka jöklasýn og Vatnajökulsþjóðgarður er aðeins í 6 km fjarlægð frá bænum. Um 30 km eru í næsta þéttbýli, Höfn i  Hornafirði.  Stórbrotin, óblíð náttúra og sú menning sem hún skóp er undirstaða blómlegrar ferðaþjónustu og mannlífs í Ríki Vatnajökuls.

Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli er fjölskylduvænn gististaður þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu. Boðið er upp á gistingu fyrir rúmlega 40 gesti og eru flest herbergi með baði. Auk þess er boðið er upp á morgunverð og kvöldverð.  Á nágrannabýlinu Árbæ býr yngri kynslóð fjölskyldunnar með kýr, hesta, hunda og ketti.  Með góðri samvinnu fjölskyldunnar geta gestir fengið innsýn í hefðbundna búskaparhætti, daglegt líf fjölskyldu í sveit og fræðslu um nánasta umhverfi.

Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli vinnur í anda Staðardagsskrár 21.  Áhersla er lögð á gæðaþjónustu og virðingu fyrir umhverfinu.  Á þann hátt mun Brunnhóll verða eitt af fyrirtækjum á Íslandi sem vinnur að sjálfbærri þróun með hagsmuni núverandi og komandi kynslóða að leiðarljósi.

Fjölskyldan á Brunnhól og starfsfólk þeirra munu því:

  • leggja rækt við störf fyrri kynslóða jafnhliða því sem vörðuð er leiðin til framtíðar
  • vinna að því að halda nánasta umhverfi hreinu og aðlaðandi,
  • draga úr mengun og verðmætasóun með endurnýtingu, endurvinnslu, orkusparnaði og notkun á umhverfisvænum efnum og tryggja að fráveitur hafi ekki spillandi áhrif á umhverfi
  • stuðla að verndun en jafnframt sýnileika menningar- og náttúruminja
  • kaupa fremur íslenskar vörur og þjónustu úr heimabyggð ef það er í boði, uppfyllir jafnframt kröfur um gæði og eru á samkeppnishæfu verði.
  • veita hæfum einstaklingum úr heimabyggð forgang í störf eða fólki frá svæðum þar sem atvinnuleysi ríkir
  • leita sífellt eftir frekari fræðslu um umhverfismál og miðla þeim upplýsingum til starfsfólks. Hvetja jafnframt gesti og birgja til að taka þátt í að vernda umhverfið með okkur
  • styrkja samstarf við sveitarfélagið, önnur fyrirtæki og íbúa á svæðinu
  • uppfylla öll ákvæði laga og reglugerða um umhverfismál sem eiga við starfssemina
  • vinna stöðugt að úrbótum í rekstri og þjónustu með það í huga að bæta frammistöðu sína í umhverfismálum og fá árlega umhverfisvottun frá Green Globe.

 


 
Á hestbaki Perla og Tító Svanur Hestastelpa
Þetta vefsvæði byggir á Eplica