Fjölskyldurnar á Brunnhóli og í Árbæ
Gestgjafar á Brunnhóli eru Sigurlaug Gissurardóttir og Jón Kristinn Jónsson. Þau eru bæði fædd og uppalin í Vestur Skaftafellssýslu.
Synir Sigurlaugar og Jóns Kristins eru Ari Þór (1971), Gissur (1976), Sæmundur Jón (1982), og Loftur (1986). Þeir tóku eftir því sem aldur og kraftar leyfðu virkan þátt í búrekstrinum með foreldrum sínum enda verkefnin næg.
Sæmundur Jón og kona hans Anne Manly Thomsen tóku við rekstri kúabúsins um áramótin 2004/05. Börn þeirra eru Líney Sif (2004), Jakob Jón (2006) og Daney Dís (2009). Þau búa í Árbæ.
Ari Þór býr á Akureyri og er kona hans Sunna Guðmundsdóttir, grunnskólakennari. Ari er bílstjóri hjá Flytjanda. Börn þeirra eru Atli Rúnar (1999), Ragnheiður Inga (2001) og Margrét María (2006)
Gissur býr á Selfossi og sambýliskona hans er Hafdís Jóna Guðmundsdóttir, skrifstofumaður. Gissur er grunnskólakennari. Börn þeirra eru Íris Embla (2003) og Logi Freyr (2006)
Loftur er nýfluttur úr foreldrahúsum og býr á Akureyri. Hann er starfsmaður í nýrri aflþynnuverksmiðju þar í bæ, en áður hafði hann m.a. starfað í Bræðslunni á Höfn og hjá Rósaberg. Vélar og tæki eru helsta áhugamál Lofts og þær eru margar stundirnar sem hann hefur tekið til hendinni við viðgerðir og fleira í bústörfunum í Árbæ.
Barnabörnin eru farin að koma í sveitina til afa og ömmu og kannski eiga þau eftir að verða starfsmenn við ferðaþjónustuna.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)


