Mýrar í Austur Skaftafellssýslu
Víðsýnt er á Mýrum í Hornafirði í Austur-Skaftafellssýslu

Sveitin Mýrar í Austur-Skaftafellssýslu liggur á milli Suðursveitar í vestri og Nesja í austri. Vesturmörk sveitarinnar eru úr Hafrafellshálsi um Hánípu til sjávar austan Sævarhólalands, en austurmörk eru við Hornafjarðarfljót. Mýrar eru einn hinna gömlu hreppa sem sameinuðust í Sveitarfélagið Hornafjörð. Sveitin er einstök perla fyrir alla þá sem áhuga hafa á jöklum, landmótun jökla, jarðfræði, fuglalífi, náttúruskoðun og útivist. Sögustaðir og menningarminjar eru við hvert fótmál. Aðgengi að jöklum er á fáum stöðum auðveldara og hvergi hefur sambýli manna við jökla verið nánara en á landræmunni sunnan Vatnajökuls, þar sem jöklar hafa gengið hvað næst mannanna byggðum hér á landi. Ef frá er talið fjalllendið við jökulröndina, einkennast Mýrar af miklu flatlendi og víðáttu, eins og nafnið gefur til kynna. Dreifing bæjarstæða endurspeglar baráttu íbúa við jökulvötnin, en þau eru nær öll staðsett á lágum holtum sem standa upp úr flatlendinu. Gönguleiðir á Mýrum eru fjölbreyttar og ná yfir margar landgerðir, frá fjöru til fjalla. Vegna þess hversu flatlent er henta vegslóðar sem liggja út frá þjóðvegi 1 vel til hjólreiða og viljum við sérstaklega mæla með þeim ferðamáta.
Undanfarin ár hefur verið unnið að því að bæta aðgengi ferðamanna að áhugaverðum stöðum s.s. Fláajökli, Haukafelli og Eskey. Einnig er greiðfær vegarslóði niður á fjörur og er beygt út af þjóðvegi eitt skammt austan við Hólmsá.
Við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs árið 2008 var Heinabergssvæðið friðlýst sem þjóðgarður og er í dag unnið að skipulagi þess þ.e. lagfæringu aðkomuleiða, skilgreiningu gönguleiða, áningarstaða og fræðsluskilta. (Texti af gönguleiðakorti af Mýrum)
Brunnhólskirkja
Á Mýrum mun alla tíð hafa verið ein kirkjusókn Einholtssókn. Lengi vel var kirkjan í Einholti og var hún svokölluð Maríukirkja. Vegna ágangs vatna var kirkjan flutt að Holtum árið 1824. Um 1840 fóru menn að huga að því að flytja kirkjuna frá Holtum að Slindurholti þar sem hún stendur núna. Ástæður voru þær að kirkjugarðurinn var orðin útgrafinn og ekki hægt um vik með stækkun. Það var þó ekki fyrr en árið 1899 sem kirkjan í Holtum var rifin og byggð ný kirkja að Slindurholti þar sem hún stendur enn.
Kirkjan var smíðuð af Móritz Steinsen. Brunnhólskirkja er í Kálfafellsstaðarprestakalli. Hún er friðuð vegna aldurs og hafist var handa við endurbyggingu hennar árið 2005. (Texti af gönguleiðakorti af Mýrum)
![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



