Um Brunnhól
Brunnhóll
Brunnhóll
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Brunnhóll

Gistiheimili í sveit á Suðausturlandi.

 

Verið hjartanlega velkomin að Brunnhóli

  • Björt og rúmgóð herbergi í hótelgæðum, nær öll með sérbaði
  • Viðurkennd aðstaða fyrir fatlaða
  • Reyklaust gistiheimili
  • Morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð
  • Jöklaís, heimalagaður ís - beint frá býli
  • Bjartar og rúmgóðar setustofur
  • Skjólgóð útisvæði með bekkjum og borðum
  • Eldhús til afnota fyrir gesti
  • Fjölskylduherbergi
  • Hefðbundinn búskapur á staðnum
  • Frábært útsýni til jökla
  • Merktar gönguleiðir í nágrenninu
  • Greiðfær vegur að jökli og niður í fjöru
  • Þjóðlegt handverk
  • Þráðlaus internetaðgangur
  • Drykkir, frímerki og fl. til sölu í afgreiðslu
  • Afgreiðsla opin frá 7.30 – 23.00
  • Kirkjustaður
  • Við þjóðveg 1, 30 km vestan Hafnar
  • Opið frá 1. apríl – 31. október

 

Brunnhóll er fjölskylduvænt og umhverfisvænt gistiheimili á Suðausturlandi þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu.  Boðið er upp á gistingu fyrir tæplega 50 gesti og eru flest herbergi með baði. Boðið er upp á heimilislegar veitingar í björtum veitingasal en einnig eldunaraðstöðu fyrir gesti. Léttir réttir í boði allan daginn, m.a. Búkolla, gúllassúpa húsfreyjunnar. 

Á nágrannabýlinu Árbæ býr yngri kynslóð fjölskyldunnar með kýr, hesta, hunda og ketti. Með góðri samvinnu fjölskyldunnar geta gestir fengið innsýn í hefðbundna búskaparhætti, daglegt líf fjölskyldu í sveit og fræðslu um nánasta umhverfi. 

Nú þurfa gestir ekki lengur að fara í fjósið til að upplifa sveitastemninguna.  Bein sjónvarpssending er ú fjósinu í sjónvörpum á herbergjum og í veitingasal og ef heppnin er með er hægt að fylgjast þegar kálfur fæðist.  Aðeins þeir allra hörðustu fara í fjósið, til að upplifa hina einu sönnu fjósalykt.  ,,I love it“

Við veitum gestum okkar fúslega upplýsingar um afþreyingu og áhugaverða staði að heimsækja í Ríki Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu.  Bæklingar og aðrar upplýsingar eru í móttöku gistiheimilisins og á herbergjum. Brunnhóll er aðila að Ferðaþjónustu bænda, Ríki Vatnajökuls og Samtökum ferðaþjónustunnar. 

 


 
Heinabergslón Frá opnun fræðslustígs 2006 Hestastelpa Á hestbaki
Þetta vefsvæði byggir á Eplica