Brunnhóll
Gistiheimili í sveit á Suðausturlandi.
Verið hjartanlega velkomin að Brunnhóli
- Björt og rúmgóð herbergi í hótelgæðum, nær öll með sérbaði
- Viðurkennd aðstaða fyrir fatlaða
- Reyklaust gistiheimili
- Morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð
- Jöklaís, heimalagaður ís - beint frá býli
- Bjartar og rúmgóðar setustofur
- Skjólgóð útisvæði með bekkjum og borðum
- Eldhús til afnota fyrir gesti
- Fjölskylduherbergi
- Hefðbundinn búskapur á staðnum
- Frábært útsýni til jökla
- Merktar gönguleiðir í nágrenninu
- Greiðfær vegur að jökli og niður í fjöru
- Þjóðlegt handverk
- Þráðlaus internetaðgangur
- Drykkir, frímerki og fl. til sölu í afgreiðslu
- Afgreiðsla opin frá 7.30 – 23.00
- Kirkjustaður
- Við þjóðveg 1, 30 km vestan Hafnar
- Opið frá 1. apríl – 31. október
Brunnhóll er fjölskylduvænt og umhverfisvænt gistiheimili á Suðausturlandi þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu. Boðið er upp á gistingu fyrir tæplega 50 gesti og eru flest herbergi með baði. Boðið er upp á heimilislegar veitingar í björtum veitingasal en einnig eldunaraðstöðu fyrir gesti. Léttir réttir í boði allan daginn, m.a. Búkolla, gúllassúpa húsfreyjunnar.
Á nágrannabýlinu Árbæ býr yngri kynslóð fjölskyldunnar með kýr, hesta, hunda og ketti. Með góðri samvinnu fjölskyldunnar geta gestir fengið innsýn í hefðbundna búskaparhætti, daglegt líf fjölskyldu í sveit og fræðslu um nánasta umhverfi.
Nú þurfa gestir ekki lengur að fara í fjósið til að upplifa sveitastemninguna. Bein sjónvarpssending er ú fjósinu í sjónvörpum á herbergjum og í veitingasal og ef heppnin er með er hægt að fylgjast þegar kálfur fæðist. Aðeins þeir allra hörðustu fara í fjósið, til að upplifa hina einu sönnu fjósalykt. ,,I love it“
Við veitum gestum okkar fúslega upplýsingar um afþreyingu og áhugaverða staði að heimsækja í Ríki Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu. Bæklingar og aðrar upplýsingar eru í móttöku gistiheimilisins og á herbergjum. Brunnhóll er aðila að Ferðaþjónustu bænda, Ríki Vatnajökuls og Samtökum ferðaþjónustunnar.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)

