Staðsetning
Frá Brunnhóli blasir Fláajökull við
Frá Brunnhóli blasir Fláajökull við
View to Fláajökull from Brunnhóll
Mynd 1 af 2
1 2

Staðsetning

Við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs í Evrópu

 

Ferðaþjónusta bænda á Brunnhóli er gisti- og veitingastaður með einstaka jöklasýn. Frá Brunnhól er mjög  víðsýnt og Vatnajökulsþjóðgarður, stærsti þjóðgarður í Evrópu,  er aðeins í 6 km fjarlægð frá bænum. Brunnhóll er við þjóðveg 1,  (aðeins 300 m sunnan þjóðvegar). Um 30 km til austurs er í næsta þéttbýli, Höfn í Hornafirði og 50 km vestar er Jökulsárlón. Stórir ísjakar fljóta á lóninu og boðið er upp á siglingu innan um þá. Stórbrotin, óblíð náttúra og sú menning sem hún skóp er undirstaða blómlegrar ferðaþjónustu og mannlífs á Suðausturlandi, í Ríki Vatnajökuls. Hér er kort af staðsetningu

Milli Brunnhóls og Reykjavíkur eru u.þ.b. 420 km.  Vegurinn er að mestu á láglendi ef undan er skilinn kaflinn yfir Hellisheiði og greiðfært er flesta daga ársins.

 

panorama2


 
Júlí Hreindýr við Heinabergsjökul Brunnholl_Mynd2 Brunnhólskirkja - júlí 2007
Þetta vefsvæði byggir á Eplica