Efni

Fjöruferðir

 

Fjöruferðir eru áhugaverðar fyrir alla aldurshópa Frá Brunnhól er auðveldast að komast niður í fjöru með því að aka eftir vegslóða skammt austan við Hólmsá.  Við ráðleggjum gestum að leggja bílnum við Skinney, því sandurinn er fremur laus og torfær.  Á jeppum er hægt að aka austur allar fjörur allt að Melatanga og blasir þá þéttbýlið á Höfn við handan Hornafjarðarfljóta. Oft má sjá skip eða báta sigla um Hornafjarðarós á leið sinni til Hafnar.  .

Aðrir staðir þar sem auðvelt er að komast niður í fjöru eru við Jökulsárlón og við Stokksnes.

Fjöruferðir ehf sem eru með bækistöðvar sínar í Óslandi á Höfn bjóða upp á bátsferðir um Hornafjörð og yfir á Melatanga þar sem hægt er að fara um fjöruna á fjórhjólum.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni
Þetta vefsvæði byggir á Eplica