Bókanir

Bókanir

ferdathj.baendahnappurBóka gistingu:

Til að bóka gistingu og veitingar er hægt að hringja í síma 478-1029, senda tölvupóst á brunnholl@brunnholl.is  eða senda símbréf  í 478-1079. Með því að smella á myndina hér til hægri er hægt að bóka á netinu í gegnum Ferðaþjónustu bænda.

Þegar bókað er þarf að gefa upp nafn, kreditkortanúmer, gildistíma greiðslukorts, símanúmer eða netfang.  Athugið að bókun í gegnum tölvupóst eða símbréf er ekki gild fyrr en hún hefur verið staðfest með kreditkortanúmeri. 

 

Afbókunarskilmálar:

Sé herbergi afbókað með minna en 48 tíma fyrirvara eða gestir koma ekki á umbeðnum dvalardegi áskiljum við okkur rétt til að skuldfæra eina gistinótt á greiðslukortið. 

Ef afbókun berst með 3 – 14 daga fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að skuldfæra 20 % af verði umbeðinnar þjónustu

Ef afbókun berst með 15 - 30 daga fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að skuldfæra 10 % af verði umbeðinnar þjónustu

Ef afbókað er með meira en 30 daga fyrirvara  er engrar greiðslu krafist.

Brunnholl_730x180


 
Regnbogi við Brunnhól Brunnholl_Mynd3 Kýrin Birna Litlir hreindýrasmalar
Þetta vefsvæði byggir á Eplica