Gisting
Brunnhóll
Brunnhóll
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Gisting á Brunnhól

Við þjóðveg 1, 30 km vestan við Höfn.  Að Jökulsárlóni eru u.þ.b. 50 km.

 

Á Brunnhóli er boðið upp á gistingu í 24, eins, tveggja og þriggja manna herbergjum sem og fjölskylduherbergi.  Margs konar afþreying í boði í nágrenninu - smellið hér.

  • Björt og rúmgóð herbergi í hótelgæðum, nær öll með sérbaði
  • Reyklaust gistiheimili
  • Herbergi fyrir hreyfihamlaða
  • Herbergi með jöklasýn
  • Þriggja manna herbergi
  • Fjölskylduherbergi
  • Hægt að fá barnarúm til afnota án gjaldtöku
  • Lítil íbúð til leigu frá 20. júní - 20. ágúst
  • Sjónvarp á herbergjum
  • Hárþurrkur á herbergjum
  • Upplýsingamappa á hverju herbergi
  • Hægt að fá lánað straujárn og straubretti
  • Mögulegt að komast í þvottavél/þurrkara gegn gjaldi
  • Vinsamlega látið vita ef komið er í næturstað eftir kl. 18

Öll herbergi nema tvö með sér baði. Viðurkennd aðstaða fyrir hreyfihamlaða.  Kvöld- og morgunverðarhlaðborð fyrir gesti.  Á gistiheimilinu er sameiginlegt gestaeldhús og bjartar setustofur.  Sími og þráðlaust internet er í sameiginlegu rými en sjónvarp á herbergjum.  Frá Brunnhóli er falleg fjalla- og jöklasýn og í nágrenninu eru nokkrar merktar gönguleiðir auk þess er hægt er að kaupa gönguleiðakort af fleiri leiðum.

Hér er hægt að sjá myndir úr herbergjunum

 


 
Tveggja manna herbergi Feðgar frá Ísrael Fláajökull norðan Jökulfells Heinabergslón
Þetta vefsvæði byggir á Eplica