Nýr veitingasalur
Bændur á Brunnhóli í framkvæmdum
Í haust hófust framkvæmdir við byggingu á nýjum veitingasal á Brunnhóli en með auknum fjölda gesta var orðið fremur þröngt um og öll vinnuaðstaða óhentug. Fyrirhugað er að taka salinn í notkun um miðjan maí, en þá hefur verið rekin ferðaþjónusta á Brunnhól í tuttugu og fimm ár. Fyrsti gesturinn var Japani sem ferðaðist fótgangandi umhverfis Ísland og var feginn húsaskjóli þótt ekki væri allt orðið klárt. En úti var hryssingslegt veður, norðan rok og kuldi. Allur aðbúnaður gesta hefur tekið miklum breytingum á þessum tuttugu og fimm árum og hefur það tekið mið af breyttri eftirspurn. Bókanir fyrir næsta ár eru teknar að streyma inn og lofa góðu ferðaári. Flestir gesta á Brunnhól hafa bókað sína gistingu fyrirfram og ferðast á bílaleigubíl eða eigin bíl. Þeir síðarnefndu hafa þá komið til landsins með Norrænu.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)


