Fréttir Brunnhóll
Kornskurður í Árbæ
Kornskurður í Árbæ
Kornskurður í Árbæ
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

Fær um 50 tonn af korni

Kornrækt hefur aukist mikið hjá bændum í Austur-Skaftafellssýslu og gengur vel. Sæmundur Jón Jónsson bóndi í Árbæ á Mýrum er með korn á 20 hekt. lands og þar á bæ er unnið við kornskurð og þreskingu þessa dagana. Ég valsa kornið og met hvað hentar handa kúnum og síðan er propóionsýru blandað í kornið en það er gert til að það geymist ferst og gott allan veturinn og þá þarf ekki að setja það í plastumbúðir segir Sæmundur. Hálminn kemur að góðum notum og fá kálfarnir og geldneytin hann til að liggja á. Af hverjum hektara kornakurs fást 3-4 tonn af korni og miðað við þurrt korn fáum við um 50 tonn sem nægir fyrir þá gripi sem ég hef núna. Kornið er mjög gott fóður fyrir kýrnar sem eru gráðugar í það og finnst það afskaplega gott, svo er annað, það er bara mikið skemmtilegra að framleiða fóðrið sjálfur en þurfa að kaupa það.

Sæmundur og Anne Manly Thomsen kona hans tóku við búinu í Árbæ fyrir 2 árum af foreldrum Sæmundar þeim Sigurlaugu og Jóni sem eru með ferðaþjónustuna á Brunnhól.

Sæmundur var með 30 mjólkurkýr sl. vetur en eru nú orðnar 45 og hann segist stefna á að bæta við kúastofninn meðan framleiðsluhorfurnar eru svona góðar eins og núna er. Ég læt alla gripi lifa og reyni að auka bústofninn sem best og hér eru allir kofar nýttir fyrir skepnurnar og verið að endurbæta fjósið. Við eigum mikla útflutningsmöguleika í mjólkurafurðum og það eina sem hamlar okkur að nýta þessa möguleika er að við höfum ekki næga mjólk og úr því þarf að bæta m.a. með því að bæta kúastofninn okkar.

Það er ánægjulegt að sjá hvað þessi ungi bóndi er fullur áhuga á búskapnum, ánægður með lífið og tilveruna og segir það gott að vera bóndi á Íslandi í dag og er bjartsýnn á framtíðina.


 
Bein útsending úr fjósinu Ísbarinn Feðgar frá Ísrael Kýrin Birna
Þetta vefsvæði byggir á Eplica