Fréttir Brunnhóll
Nordjobb_IMG_5270
Nordjobb_IMG_5270
Ella Kalliokoski frá Helsingi og Emmy Andersson frá Malmö starfa í sumar við ferðaþjónustuna á Brunnhól á Mýrum.

Nordjobbarar á Brunnhól

Aldrei fyrr hafa svo margir Nordjobbarar verið við störf á Íslandi en yfir 140 ungmenni koma til landsins í sumar á vegum verkefnisins! Þetta er metár hjá Nordjobb og ljóst er að íslenskir vinnuveitendur hafa tekið afar vel í að ráða til sín norrænan starfskraft. Eftirspurn í ár hefur verið það mikil að vart hefur tekist að anna henni en til samanburðar má nefna að í fyrra voru hér 96 Nordjobbarar og sumarið 2004 komu 76 hingað til lands. Þrjú ungmenni hjá Nordjobb, þau Peter Björkman frá Gautaborg, Ella Kalliokoski frá Helsingi og Emmy Andersson frá Malmö starfa í sumar við ferðaþjónustuna á Brunnhól á Mýrum. Enginn Hornfirðingur er núna að störfum gegnum Nordjobb. Nordjobb er samstarfsverkefni milli Norðurlandanna sem miðlar norrænu fólki á aldrinum 18-28 ára sumarstörfum í nágrannalöndunum. Í ár er verkefnið starfrækt í 21. sinn en það hefur verið starfrækt frá árinu 1985. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.

Ungmennin sem hér dvelja koma frá hinum Norðurlöndunum, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð auk Færeyja, Grænlands og Álandseyja og dvelja sumarlangt hér á landi við hin ýmsu störf. Á höfuðborgarsvæðinu vinna flestir við garðyrkju og umönnun en úti á landi eru það hótelstörfin sem eru algengust auk þess sem margir starfa á sveitabæjum víðsvegar um landið.

Nordjobb heldur úti öflugri tómstundadagskrá fyrir Nordjobbarana. Á dagskrá eru ferðalög út á land, fjallgöngur, íslenskunámskeið, þjóðakvöld, kvikmyndakvöld og margt fleira.


 
Bein útsending úr fjósinu Ísbarinn Feðgar frá Ísrael Kýrin Birna
Þetta vefsvæði byggir á Eplica