Fréttir Brunnhóll
Sigurlaug Gissurardóttir í  velbúnu  gestaeldhúsi á Brunnhól
Sigurlaug Gissurardóttir í velbúnu gestaeldhúsi á Brunnhól

Byggingarframkvæmdir að hefjast á Brunnhól

Sumarið er búið að vera mjög gott, mikið að gera og mikið af ánægðum gestum og nánast eru þetta allt erlendir ferðamenn segir Sigurlaug Gissurardóttir ferðaþjónustu bóndi á Brunnhól (Árbæ) á Mýrum. Í sumar höfum við verið með í leigu íbúðarhúsið á Rauðabergi, sem búnaðarsambandið á en notar ekki síðan það flutti starfsaðstöðu sína í Nýheima , og við höfum einungis leigt það allt í einu. Þetta er mjög hentugt fyrir fjölskyldu og það hefur verið mikil eftirspurn eftir að komast þar inn. Núna þegar ferðavertíðinni líkur verður farið að byrja framkvæmdir við nýtt gistiheimili á Brunnhól. Í nýju byggingunni, sem kemur vestan við gistiheimilið, verða 16 herbergi og fyrst um sinn verða fimm herbergin notaður fyrir íbúð. Rúmgott og vel búið eldhús er á Brunnhól og segir Sigurlaug að það sé mikið notuð af ferðamönnum, það er alltaf að aukast að fólk vill elda handa sér og þarna er líka góð aðstaða til að borða.

Fjöldi ferðamanna hafa í sumar lagt leið sína inn að Fláajökli, ekið eftir varnargörðunum og gengið þaðan inn að jöklinum en það er tæplega klukkutíma gangur. Þarna er geysilega fallegt og gaman að koma þarna á svæðið framan við Fláajökul, eins er sérstaklega falleg leið frá Fláajökli að Haukafelli. Vel hefur viðrað í sumar til að nýta þær mörgu gönguleiðir sem búið er að merkja í sýslunni og segist Sigurlaug vita um fólk sem komið hefur gagngert á svæðið til ferðast um sveitirnar eftir þessum gönguleiðum.


 
Bein útsending úr fjósinu Ísbarinn Feðgar frá Ísrael Kýrin Birna
Þetta vefsvæði byggir á Eplica