Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í haust hófust framkvæmdir við byggingu nýrrar aðstöðu fyrir veitingasölu á Brunnhól, áfast gistiheimilinu og með því mun öll aðstaða batna til mikilla muna. Fyrirhugað er að opna nýjan veitingasal um miðjan maí en um þær mundir hefur ferðaþjónusta á Brunnhól verið starfrækt í 25 ár.
Lesa meira
Í haust hófust framkvæmdir við byggingu á nýjum veitingasal á Brunnhóli. Fyrirhugað er að taka salinn í notkun um miðjan maí.
Lesa meira
Gestkvæmt hefur verið á Brunnhól undanfarna daga og hefur ekki verið svo líflegt í gistingu í apríl undanfarin ár. Ísborðið frá Jöklaís er komið á sinn stað og er vinsælt sem fyrr. Vorverkin í sveitinni eru á fullu og vinnudagurinn oft langur. Fyrst var gengið í að keyra út skít og nú er unnið við að plægja og herfa kornakrana. Sáð verður í um 40 ha og er það svipað og á síðasta ári.
Lesa meira
Á ferðaþjónustubænum Brunnhól á Mýrum gefst gestum kostur á að fylgjast með því sem gerist í fjósinu á staðnum í sjónvarpskerfi gistiheimilisins. Inni á herbergjum geta þeir fylgst með mjöltum, kálfsburði eða hverju því sem fram fer í fjósinu.
Lesa meira
Kornrækt hefur aukist mikið hjá bændum í Austur-Skaftafellssýslu og gengur vel. Sæmundur Jón Jónsson bóndi í Árbæ á Mýrum er með korn á 20 hekt. lands og þar á bæ er unnið við kornskurð og þreskingu þessa dagana.
Lesa meira
Aldrei fyrr hafa svo margir Nordjobbarar verið við störf á Íslandi en yfir 140 ungmenni koma til landsins í sumar á vegum verkefnisins! Þetta er metár hjá Nordjobb og ljóst er að íslenskir vinnuveitendur hafa tekið afar vel í að ráða til sín norrænan starfskraft.
Lesa meira
Sumarið er búið að vera mjög gott, mikið að gera og mikið af ánægðum gestum og nánast eru þetta allt erlendir ferðamenn segir Sigurlaug Gissurardóttir ferðaþjónustu bóndi á Brunnhól (Árbæ) á Mýrum.
Lesa meiraBrunnhóll | Mýrar | 781 Hornafjörður | 478 1029 | Fax 478 1079 | brunnholl@brunnholl.is