Afþreying í Ríki Vatnajökuls
Við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs
- Fjölbreytt afþreying er í Ríki Vatnajökuls á Suðausturlandi
- Skipulagðar ferðir s.s. jöklaferðir, fjöruferðir og gönguferðir
- Fjölmargir áhugaverðir staðir, þekktir og minna þekktir.
- Gönguleiðir, fuglaskoðun, jarðfræði, fjallamenning og margt fleira
- Áhugaverðar sýningar og menningarviðburðir.
- Glæsileg sundlaug á Höfn með freistandi rennibrautum, nuddpottum og gufu.
- Mundu bara að gefa þér tíma til að njóta og hlusta eftir tónlist náttúrunnar eða upplifa þögnina.
Við veitum gestum okkar allar upplýsingar um áhugaverða staði í Ríki Vatnajökuls, hvort sem þeir eru nær eða fjær. Bæklingar og aðrar upplýsingar eru í móttöku og einnig í upplýsingamöppum á herbergjum. Verið óhrædd að leita eftir aðstoð. Við veitum hana fúslega með bros á vör.
Víða við þjóðveginn eru áningarstaðir með fræðsluskiltum um næsta nágrenni þar sem vert er að staldra við. Einnig er að finna fjölmarga vegslóða sem leiða gesti að lítt þekktum en fallegum stöðum. Veitum gestum okkar allar upplýsingar um áhugaverða staði í Ríki Vatnajökuls, hvort sem þeir eru nær eða fjær.
Vegagerðin hefur komið upp áningarstöðum við þjóðveg 1. Þar er upplagt að staldra við um stund og taka upp nestið sitt. Á þeim flestum eru fræðsluskilti um nágrennið og víða er tilvalið að fara í stutta gönguferð. Hér er hægt að sjá þjónustukort vegagerðarinnar.
Fjöruferðir eru áhugaverðar fyrir alla aldurshópa. Frá Brunnhól er auðveldast að komast niður í fjöru með því að aka eftir vegslóða skammt austan við Hólmsá. Við ráðleggjum gestum að leggja bílnum við Skinney, því sandurinn er fremur laus og torfær.
Á jeppum er hægt að aka austur allar fjörur allt að Melatanga og blasir þá þéttbýlið á Höfn við handan Hornafjarðarfljóta. Oft má sjá skip eða báta sigla um Hornafjarðarós á leið sinni til Hafnar.Aðrir staðir þar sem auðvelt er að komast niður í fjöru eru við Jökulsárlón og við Stokksnes.
Fjöruferðir ehf sem eru með bækistöðvar sínar í Óslandi á Höfn bjóða upp á bátsferðir um Hornafjörð og yfir á Melatanga þar sem hægt er að fara um fjöruna á fjórhjólum. Sjá nú Hoffell.com
Mikið og fjölbreytt fuglalíf er í Ríki Vatnajökuls.Suðausturland liggur vel við flugi farfugla til og frá Evrópu. Þess vegna eru þar kjörskilyrði til þess að fylgjast með farfuglunum þegar þeir streyma til landsins á vorin og hópa sig saman að hausti og búa sig undir að hverfa til hlýrri heimkynna.Sumir dvelja þó hjá okkur allt árið eins og krummi.
Hægt er að komast í fuglaskoðunarferðir í Ingólfshöfða með Öræfaferðum.Við göngustíg í Haukafelli er fræðsluskilti sem sýnir helstu fugla sem þar er að sjá. Sjá vefinn fuglar.is
Frá golfvellinum á Silfurnesi við Höfn er stórkostlegt útsýni til jökla. Völlurinn er 9 holu og nýendurbættur. Hann er í umsjón Golfklúbbs Hornafjarðar. Golfskálinn stendur við Dalbraut.
Margar og fjölbreyttar gönguleiðir er að finna í Ríki Vatnajökuls. Hvort heldur leitað er eftir léttum eða erfiðum göngum, stuttum eða löngum, ættu flestir að geta fundið leiðir við hæfi. Nokkrar gönguleiðanna eru stikaðar. Gönguleiðakort eru til af Suðursveit, Mýrum, Nesjum og Lónsöræfum og er m.a. hægt að nálgast þau hér eða á Brunnhól og á Upplýsingamiðstöð Suðausturlands á Jöklasýningu.
Nokkrir ferðaþjónustuaðilar bjóða upp á skipulagðar gönguferðir s.s. Öræfaferðir, Íslenskir fjallaleiðsögumenn og Ferðafélag Austur Skaftafellssýslu.
Á Höfn getur verið skemmtilegt að kíkja inn á handverkshús sem selur ýmis konar handverk úr héraði. Handraðinn er til húsa að Hafnarbraut 34 a, Höfn.
Hreindýr lifa villt í náttúrunni í Ríki Vatnajökuls. Á sumrin halda þau sig til fjalla en koma niður á láglendið þegar haustar að og vetur gengur í garð. Mörgum finnst hreindýrin falleg og oft er hægt að sjá þau við þjóðveginn. Vissara er að hafa það í huga sérstaklega þegar ekið er í myrkri. Mögulegt er að kaupa veiðileyfi á hreindýr. Upplýsingar á hreindyr.is
Að stíga fæti sínum á jökul er nokkuð sem engan lætur ósnortinn. Velja má um nokkra möguleika til að komast í skipulagðar jöklaferðir s.s., Vatnajökull - Travel, Jöklajeppa, Öræfaferðir og Íslenska fjallaleiðsögumenn.
Við mælum ekki með því að farið sé á eigin vegum upp á Vatnajökul, nema viðkomandi sé vanur ferðum á jökul, hafi kynnt sér allar aðstæður og láti vita um ferðaáætlun.
Margar fallegar kirkjur eru í Ríki Vatnajökuls og ekki úr vegi að athuga hvenær næst verður guðsþjónusta í einhverri þeirra.
Þegar haustar að og hitastig fer niður fyrir frostmark má á björtum kvöldum oftast sjá norðurljós. Þau sjást einkum síðla kvölds og er fallegust í miklu frosti og stillum. Hægt er að komast í sérsniðnar norðurljósaskoðunarferðir með Vatnajökull - Travel.
Hvar er hægt að sjá seli á Suðausturlandi? Á vetruna er jafnan fjöldi sela við Jökulsárlónið en minna er af þeim á sumrin. Stundum má sjá seli við útfall Hólmsár við Skinneyjarhöfða. Þegar gestir hafa nægan tíma mælum við með að gengin sé gönguleið fyrir Horn. Selir flatmaga þar oft á klöppunum við fjöruborðið. Sjá leiðarlýsingu á gönguleiðakorti af Nesjum (pdf).
Boðið er upp á siglingu innan um ísjakana á Jökulsárlóni. Einnig er boðið upp á kvöldsiglingu um Skarðsfjörðinn.
Fyrir þá er finnst ómissandi að fara í sund þá ber að geta þess að ný og glæsileg sundlaug er á Höfn.Sjá opnunartíma á Ríki Vatnajökuls. Nýja sundlaugin á Höfn var opnuð á sumardaginn fyrsta árið 2009 og leysti þá af rúmlega 50 ára gamla sundlaug. Buslulaug, nuddpottar, gufa og þrjár rennibrautir eru meðal þess sem býðst. Heitar náttúrulaugar eru í Hoffelli, www.hoffell.com
Áhugaverð söfn og sýningar eru á Suðausturlandi (sjá hér). Í Gömlubúð á Höfn er byggða- og náttúrugripasafn, í Pakkhúsi er sjóminjasafn.
Á Jöklasýningu á Höfn er að finna margvíslegan fróðleik um eðli og áhrif jökla og hvernig jökullinn hefur mótað mannlíf og menningu í Ríki Vatnajökuls.
Þórbergssetur í Suðursveit leggur áherslu á að kynna æfi og störf rithöfundarins Þórbergs Þórðarsonar sem fæddist og ólst upp í Suðursveit.
Gestastofan í Skaftafelli veitir innsýn í náttúru og mannlíf í Öræfasveit.
Fjölmargir menningarviðburðir eru í Ríki Vatnajökuls. Þekktastir eru Humarhátíð á Höfn og skemmtanir á vegum Hornfirska skemmtifélagsins
Þeim sem ánægju hafa af því að veiða í ám og vötnum viljum við benda á að setja sig í samband við strengir.is en hjá þeim er m.a. hægt að kaupa veiðileyfi í Laxá í Nesjum. Á hverju hausti sækir mikið af gæs í kornakrana. Þeir eru yfirleitt í fastri leigu og því ekki lengur mögulegt að droppa við og kaupa veiðileyfi.
Skaftafellsþjóðgarður var stækkaður árið 2003 og spannar eftir það nær alla jökulhettuna á suðurhluta Vatnajökuls. Vatnajökulsþjóðgarður var formlega stofnaður, 7. júni 2008.
Á Suðausturlandi er aðeins um eina leið að velja til að komast akandi upp á jökulinn, leið F 985 að Jöklaseli við Skálafellsjökul. Einnig er unnt að fara í skipulagðar gönguferðir á Öræfajökul.
Unnið er að því að bæta aðgengi, stika gönguleiðir og koma upp fræðsluskiltum við jarðar þjóðgarðsins á nokkrum stöðum m.a. við Fláajökul og Skálafell. Auk þess eru nokkrir aðrir vegslóðar m.a. að Hoffellsjökli.
Áhugavert er að skoða jökullónin sem víða eru við jökuljaðarinn, ganga um landið sem áður var hulið jökli, virða fyrir sér ummerki eftir straumharðar jökulár sem flæddu stjórnlaust um og ógnuðu byggð og setja sig í spor íbúa sem börðust við að beisla vötnin.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)


