Í næsta nágrenni
eru margir áhugaverðir staðir sem eru þess virði að heimsækja.
Verið óhrædd við að leita eftir aðstoð. Við veitum hana fúslega með bros á vör.
- Við veitum gestum okkar allar upplýsingar um áhugaverða staði í Ríki Vatnajökuls.
- Bæklingar og aðrar upplýsingar eru í móttöku og í upplýsingamöppum á herbergjum.
- Fjölbreyttar gönguleiðir eru í nágrenninu - gönguleiðarkort eru til sölu í afgreiðslu og þau er hægt að nálgast hér á vefnum: Mýrar, Nes, Suðursveit. (pdf)
- Fláajökull
- Útivistar- og skógræktarsvæði í Haukafelli
- Hlustað á tónlist náttúrunnar
- Fuglaskoðun – fjölbreytt fuglalíf er umhverfis Brunnhól
- Fjöruferðir – greiðfær vegslóði er niður á fjörur

Kirkjan á Brunnhóli er sóknarkirkja íbúa á Mýrum. Árið 1899 var kirkja flutt úr Holtum á Slindurholt í Brunnhólslandi. Um 1950 var kirkjan endurbætt og öðru sinni í byrjun 21 aldar. Sjá fleiri myndir af Brunnhólskirkju hér.

Fláajökull hefur hopað á þriðja km s.l. öld. Við gerð nýjasta varnargarðs framan jökulsins myndaðist jökullón. Akfært er eftir varnargarðinum og frá austurenda hans er hægt að ganga að jöklinum austanverðum eftir merktri gönguleið.
Í tíðum jökulhlaupum var allt láglendi sveitarinnar oft umflotið beljandi vötnum. Árið 1937 var ráðist í gerð varnargarða sem beindu vötnunum í einn farveg. Hopunarsögu jökuls og baráttusögu mannsins við jökulvötnin hefur verið gerð skil í kaldri gestastofu og með fræðsluskiltum við merkta gönguleið framan við Fláajökul.
Eskey lætur ekki mikið yfir sér og óvíða er betra útsýni yfir Mýrar en þaðan. Þar eru fræðslu- og örnefnaskilti og merkt gönguleið. Á hverju vori verpir hrafn í klettunum sunnan á Eskey.
Heinabergsón ásamt fjalllendi, dölum og jökulöldum í nágrenninu eru hluti af nýjum Vatnajökulsþjóðgarði. Allnokkuð er að hreindýrum á þessum slóðum.
Brúin yfir Heinabergsvötn var mikið mannvirki á sínum tíma og er þögult vitni um hversu baráttan við vötnin reyndist oft á tíðum erfið. Skömmu eftir að hún var byggð breyttu Heinabergsvötn um farveg og renna nú í Kolgrímu. Eftir stendur brúin á þurru landi, þögult vitni um óútreiknanleg náttúruöfl.
Fjaran vekur alltaf forvitni allra aldurshópa. Frá Brunnhóli er auðveldast að komast niður í fjöru með því að aka eftir vegslóða skammt austan við Hólmsá. Við ráðleggjum gestum að leggja bílnum við Skinney.
Útivistarsvæði í eigu Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu. Auk þess að planta trjám í svæðið hefur félagið komið upp tjaldsvæði og þar er þjónustuhús með salerni og rennandi vatni. Veðursælt er í Haukafelli og þar eru merktar gönguleiðir og fræðsluskilti.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



