Afþreying
Brunnholl_Mynd4
Brunnhóll - útsýni
Útsýni frá Brunnhóli
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Í næsta nágrenni

eru margir áhugaverðir staðir sem eru þess virði að heimsækja.

 

Verið óhrædd við að leita eftir aðstoð.  Við veitum hana fúslega með bros á vör.

  • Við veitum gestum okkar allar upplýsingar um áhugaverða staði í Ríki Vatnajökuls.
  • Bæklingar og aðrar upplýsingar eru í móttöku og í upplýsingamöppum á herbergjum.
  • Fjölbreyttar gönguleiðir eru í nágrenninu - gönguleiðarkort eru til sölu í afgreiðslu og þau er hægt að nálgast hér á vefnum: Mýrar, Nes, Suðursveit. (pdf) 
  • Fláajökull
  • Útivistar- og skógræktarsvæði í Haukafelli
  • Hlustað á tónlist náttúrunnar
  • Fuglaskoðun – fjölbreytt fuglalíf er umhverfis Brunnhól  
  • Fjöruferðir – greiðfær vegslóði er niður á fjörur 

 

Brunnhólskirkja - júlí 2007

Kirkjan á Brunnhóli er sóknarkirkja íbúa á Mýrum.  Árið 1899 var kirkja flutt úr Holtum á Slindurholt í Brunnhólslandi.  Um 1950 var kirkjan endurbætt og öðru sinni í byrjun 21 aldar. Sjá fleiri myndir af Brunnhólskirkju hér.

 

Fláajökull að vetri til

Fláajökull hefur hopað á þriðja km s.l. öld.  Við gerð nýjasta varnargarðs framan jökulsins myndaðist jökullón.  Akfært er eftir varnargarðinum og frá austurenda hans er hægt að ganga að jöklinum austanverðum eftir merktri gönguleið. 

 

Skilti við fræðslustígÍ tíðum jökulhlaupum var allt láglendi sveitarinnar oft umflotið beljandi vötnum. Árið 1937 var ráðist í gerð varnargarða sem beindu vötnunum í einn farveg.  Hopunarsögu jökuls og baráttusögu mannsins við jökulvötnin hefur verið gerð skil í kaldri gestastofu og með fræðsluskiltum við merkta gönguleið framan við Fláajökul.

 

HrafnslaupurEskey lætur ekki mikið yfir sér og óvíða er betra útsýni yfir Mýrar en þaðan.  Þar eru fræðslu- og örnefnaskilti og merkt gönguleið.  Á hverju vori verpir hrafn í klettunum sunnan á Eskey.

 

 

HeinabergslónHeinabergsón ásamt fjalllendi, dölum og jökulöldum í nágrenninu eru hluti af nýjum Vatnajökulsþjóðgarði.  Allnokkuð er að hreindýrum á þessum slóðum.

 

 

HeinabergsvatnabrúBrúin yfir Heinabergsvötn var mikið mannvirki á sínum tíma og er þögult vitni um hversu baráttan við vötnin reyndist oft á tíðum erfið. Skömmu eftir að hún var byggð breyttu Heinabergsvötn um farveg og renna nú í Kolgrímu. Eftir stendur brúin á þurru landi, þögult vitni um óútreiknanleg náttúruöfl.  

 

Leikið i fjörunniFjaran vekur alltaf forvitni allra aldurshópa.  Frá Brunnhóli er auðveldast að komast niður í fjöru með því að aka eftir vegslóða skammt austan við Hólmsá.  Við ráðleggjum gestum að leggja bílnum við Skinney.

 

 

Að leik í HaukafelliÚtivistarsvæði í eigu Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu.  Auk þess að planta trjám í svæðið hefur félagið komið upp tjaldsvæði og þar er þjónustuhús með salerni og rennandi vatni.  Veðursælt er í Haukafelli og þar eru merktar gönguleiðir og fræðsluskilti.



 
Hvalbein i fjörunni Jökulker Regnbogi við Brunnhól Vetrarsýn frá Brunnhól
Þetta vefsvæði byggir á Eplica