Björgunarfélag Hornafjarðar
Að bjarga allri áhöfninni 14 manns í land var ólýsanleg
Í nýlegu viðtali við Svein Sighvatsson fyrrum formann Björgunarfélags Hornafjarðar bar ýmislegt á góma um starfsemi félagsins og útköll og þar á meðal strand Sæbjargar VE-56 við Stokksnes 1984. Það er einhver eftirminnilegasti björgunarleiðangur sem ég man eftir segir Sveinn og sú góða tilfinningin þegar búið var að bjarga allri áhöfninni 14 manns í land var ólýsanleg. Það var laust fyrir kl. 5 mánudaginn 17.des. að hringt var frá Slysavarnarfélagi Íslands og tilkynnt að Sæbjörg VE-56 eigi í erfiðleikum um 1,5 sm. út af Stokksnesi í slæmu veðri, skipið væri með bilaða vél og hefði Erling KE-45 komið taug á milli skipanna. Ákveðið var að kalla saman björgunarsveitina og yrði hún í viðbragðsstöðu ef á þyrfti að halda og einnig yrði strax haft samband við loftskeytastöðina á Höfn. Í því að haft var samband við loftskeytastöðina og hún hafði staðfest staðsetningu skipanna kom beiðni frá Sæbjörgu um að kalla út björgunarsveitina.
Útkall var þegar sent og eftir skamman tíma voru björgunarsveitarmenn mættir í hús sveitarinnar, fluglínutækjum komið út í björgunarsveitarbílinn og þegar haldið af stað út að Stokksnesi. Svo vont var veðrið á leiðinni að bílar rásuðu til á auðum veginum.
Þegar komið var út undir radarstöðina á Stokksnesi sást hvar Sæbjörgin veltist í briminu út af miðri Hornsvíkinni og hafði hún þá borist austar miðað við þá staðsetningu sem fyrst var gefin upp. Ekið var austur sandinn þar til komið var á móts við skipið og farið að taka mið af reki skipsins en menn voru mjög hræddir um að það ræki upp í Hafnartangann en sjó braut yfir hann þegar verst lét.
Það var mikill léttir þegar ljóst þótti að skipið slyppi við tangann og bærist inn í víkina þar sem björgunarsveitin var. Meðan fylgst var með skipinu þar sem það dró festar var beðið um viðbótar ljós frá Varnarliðinu og kom síðar hópur manna með ljósin og veittu björgunarsveitinni aðstoð sína.
Þegar hér var komið var óskað eftir þriggja drifa vörubíl á staðinn einnig var beðið um rútu og lækni á staðinn, hjúkrunargögn og ýmsan þann búnað sem að gagni mætti koma .