Tæki og búnaður
Tækjakostur
Toyota Landcruser jöklabíll
Landcruserinn er á 44” læstur að framan og aftan með niðurgír.
Á bílnum er spill og snjóanker, drullutjakkur, álkarl, skóflur, leitarljós og tóg. Í bílnum er GPS, VHS, CB, SSB, NMT sími og gervihnattasími. Kallmerki HÖFN2. Sjúkrabúnaður bílsins er stór sjúkrabakpoki, hjartastuðtæki, teppi, súrefnistæki, loftbörur og skelbörur.
Ford Ecolener fólksflutnigabíll
Bíllinn er til fólksflutniga og er á 35” læstur að framan og aftan. Á bílnum er spill, drullutjakur, álkarl, skóflur, leitarljós og tóg. Í bílnum er GPS, VHS, CB, NMT sími og gervihnattasími. Kallmerki HÖFN1.
Sjúkrabúnaður bilsins er stór sjúkrapúði, hjartastuðtæki, súrefnistæki, teppi, loftbörur og skelbörur.
Ford Pikupp jöklabíll
Bíllinn er á 44” læstur framan og aftan með niðurgír. Á bílnum er spill og snjóánker, drullutjakkur, álkarl, skóplur og tóg. Í bíllnum er GPS, VHS, CB, NMT og gervihnattasími. Kallmerki HÖFN3.
Sjúkrabúnaður bílsins er stór sjúkrapúði teppi og börur.
Tvo Lynx Rave X-trim 800PT 2008 árg og tvo Yamaha fjórgeingis vélsleða 2006 árg
Sleðarnir eru á negldu belti og með GPS, VHF, gervihnattasíma,
sjúkragögnum og fleiru.
Zodiac
Báturinn er með 30 hestsafla Yamaha mótor. Í bátnum er að finna kastlínur, neyðarblys, sjúkragögn, VHF stöð og GPS.