Björgunarfélag : Fréttir
Flugslysaæfing
Nú er allt á fullu í undirbúning vegna flugslysaæfingarinnar sem verður á morgun.
Í gær tókum við fyrir bráðaflokkun á slysstað og gekk það mjög vel.
Klukkan fimm í dag verður svo fyrirlestur í Sindrabæ, þar sem aðgerðastjórnun verður tekin fyrir, svo í kvöld klukkan átta verður sameiginleg útiæfing, þar verða, Björgunarfélag Hornafjarðar,
Kvennadeildin Framtíðin,
slökkvilið Hornafjarðar, HSSA,
sjúkraflutningamenn staðarins og Lögreglan.
Í fyrramálið klukkan átta verður framhald á fyrirlestri í aðgerðarstjórnun.
Klukkan tólf hefst svo sjálf æfingin og vonumst við til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta því þetta verður án efa lærdómsríkt og fróðlegt.
