Björgunarfélag : Fréttir
Björgunarskipið komið til landsins
Björgunarskip Hornfirðinga og Skagfirðinga komu til Reykjavíkur s.l. þriðjudag eftir að hafa beðið flutnings frá Bretlandi í nokkrar vikur, en vegna mikilla flutninga hjá Samskip hefur ekki verið laust pláss fyrir skipin tvö fyrr en nú. Björgunarskipin standa nú á bryggjukanti hjá Samskip í Reykjavík þar sem Siglingastofnun skoðar skipin. Stefnt er á að sjósetja okkar skip á mánudaginn og sigla því til Hafnarfjarðar segir Friðþór Harðarson. Þar verður unnið lítilsháttar um borð og áhöfn fær kennslu á skipið og að því búnu siglum við heim einhvern næsta blíðviðrisdag. Söfnun handa Björgunarsjóði Hornafjarðar hefur gengið mjög vel, stjórn (félagar) björgunarsjóðsins hafa leitað til fyrirtækja og einstaklinga um framlög (styrk) til Björgunarbátasjóðs og hafa honum borist höfðinglegar gjafir og verður nánar sagt frá þeim hér á vefnum þegar skipið kemur heim.
Við minnum á að söfnuninni er ekki lokið og að reikningur björgunarbátasjóðsins er: 172-26-1560, kt. 640205-1560
