Björgunarfélag : Fréttir
Ætlaði að sýna unnustunni Vatnajökul
Útkall gulur eins og það heitir á Björgunarsveitarmáli var kl. 13:12 í gær frá 112 um að það vantaði aðstoð á Vatnajökull. Hringt hafði verið úr gervihnattasíma í Jöklasel og beðið um aðstoð á ákveðin GPS punkt. Farið var á tveimur sleðum og þremur jeppum og stefnan tekinn á upp gefin punkt en þar var ekkert að finna svo sveitir á Austurlandi sem voru komnar i viðbragsstöðu voru beðnar að halda á stað. Fólkið hafði samband að nýju í Jöklasel og gaf upp staðsetninguna aftur og þá kom í ljós að vegna misskilnings hafði munað 40 km. Ferðalangarnir sem voru par, Finni sem ætlaði að sýna unnustu sinni sem var frá Póllandi Vatnajökul fundust um kl 18:30 og var fólkið blaut og hrakið og brennt í andliti eftir sterka birtu á jöklinum. Margir ferðalangar vanmeta aðstæður á jöklinum og telja að ekki sé hætta á sólbruna ef ekki er sól sem er stór misskilningur.
Komið var með fólkið til Hafnar um 11 leitið í gærkvöldi og því komið undir læknishendur.