Björgunarfélag : Fréttir
Allir kallar seldir - nema þeir sjálfir
Um helgina stóð Slysavarnarfélagið Landsbjörg fyrir átakinu "Neyðarkall frá björgunarsveitum" þar sem seldur var lítill sjóbjörgunarkall á lyklakippu. Félagar í Björgunarfélagi Hornafjarðar stóðu við Nettó í miðbæ og N1 á Vesturbraut föstudag og laugardag, á föstudeginum voru félagsmenn með tvo vélsleða fyrir utan og voru þér óspart notaðir til að skoða og hnoðast á. Skemmst er frá því að segja að allir kallar voru seldir - nema þeir sjálfir og ljóst að hornfirðingar og landsmenn allir kunna vel að meta störf sjálfboðaliða félagsins.
Landsmenn styrktu ekki einungis björgunarsveitirnar fjárhagslega með kaupum á Neyðarkalli heldur einnig með góðu viðmóti sem gerði söluna afar skemmtilega fyrir sjálfboðaliðana en margir færðu þeim góðar þakkir fyrir störf þeirra að björgunar- og slysavarnamálum.
Björgunarfélagsmenn hér hafa líka verið á faraldsfæti og fóru nokkrir á alþjóðlega björgunarráðstefnu í Reykjavík um síðustu helgi og kynntu sér mörg góð málefni. Þar var fluttur fyrirlestur af félöga héðan um leitina að þjóðverjunum tveimur á Svínafellsjökli sem fram fór árið 2007.
Vilja björgunarsveitarmenn koma á framfæri þökkum til allra fyrir góðar móttökur.
