Björgunarfélag : Fréttir

Vid_Vadid_a_Jokulsa_a_Dal
Vid_Vadid_a_Jokulsa_a_Dal
Jeppaferð 4x4 (úr myndasafni 4x4 Hornafjarðardeild)

Öryggi í ferðalögum um páskana

19.03.2008

Nú um páskana leggja margir landsmenn land undir fót. Af því tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg vekja athygli á nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í ferð um landið, sama hvort er á láglendi eða hálendi, með það að markmiði að koma í veg fyrir slys. Ef ferðast er um láglendið: fylgist með veðurspá, farið yfir hjólbarðana og hreinsið tjöru af þeim, verið viss um að rúður séu hreinar, sólin er lágt á lofti og blindar auðveldlega, stillið aksturshraðann miðað við aðstæður en þó aldrei umfram hámarkshraða, munið að akstur og áfengi fer ekki saman og hafið beltin spennt og tryggið öryggi barnanna

Ef ferðast er um hálendið: fylgist með veðurspá, gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum, kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um, hafið í huga að mikið er af krapa á stórum svæðum þessa dagana og margir lent í vandræðum þar undanfarið, hafið með góðan hlífðarfatnað, takið með sjúkragögn og neyðarfæði, fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau, verið viss um að farartækið sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað, ferðist ekki einbíla, takið með grunnviðgerðardót fyrir farartækið og festið allan farangur, munið að akstur og áfengi fer ekki saman. Ef ferðast er í bíl spennið beltin og tryggið öryggi barnanna og notið hjálma, brynjur og annan hlífðarfatnað ef farið er um á vélsleða eða skíði. Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur

Senda grein

 
Af bílakosti BFH Gísli Geir Að lóða er nákvæmnisvinna Hús félagsins við Álaugarveg
Þetta vefsvæði byggir á Eplica