Björgunarfélag : Fréttir

Sleðaferð á Rótarfjallshnjúk
Sleðaferð á Rótarfjallshnjúk
Sleðaferð á Rótarfjallshnúk (úr myndasafni)

Þetta er góður og samhentur hópur

22.02.2008

Á síðasta ári voru 32 útköll hjá Björgunarsveitinni og um 50 æfingaútköll segir Jónas Friðriksson formaður Björgunarfélags Hornafjarðar. Hann segir að stærsta björgunin hafi verið þegar tókst að bjarga flutningaskipinu Axel frá því að reka á land við Hornafjarðarós en skipið var aðeins hálfa sjómílu frá landi þegar björgunarsveitarmönnum tókst að koma taug í skipið og draga það til hafs út á Birni Lóðs og eftir eina klst. þegar tókst að koma vélum skipsins í gang var því borgið. Virkir aðilar í björgunarsveitinni eru 12-15 þar af eru tvær stúlkur og þegar útköll eru mætir bakvarðarsveitin líka en í henni eru 20-25 manns þar í eru 10 stúlkur. Þetta er ung sveit og er meirihluti hennar 20 til 30 ára segir Jónas, þetta er góður og samhentur hópur og svo er það unglingasveitin okkar þar eru um 25 unglingar 13-18 ára í þjálfun og þau eru vel áhugasöm og dugleg.

Formannafundur allra björgunarsveita á landinu sem haldinn er á vegum Landsbjargar verður að þessu sinni haldinn á Höfn í apríl n.k. Jónas á von á góðri þátttöku, hann reiknar með að allt að 80-100 manns mæti á fundinn.

Senda grein

 
Af bílakosti BFH Gísli Geir Að lóða er nákvæmnisvinna Hús félagsins við Álaugarveg
Þetta vefsvæði byggir á Eplica