Björgunarfélag : Fréttir
Samæfing á Austurlandi laugardaginn 9 apríl.
Samæfing á Austurlandi laugardaginn 9 apríl.
Farið var á tveim bílum með tvo sleða á æfinguna og fóru sex félagar úr sveitinni.
Sveinbjörn og Garðar fóru á Fordinum með sleðana. Ingólfur, Kalli, Halli og Lilja fóru á Cruser.
Farið var frá Höfn kl 01:30 og komið uppá Egilstaði kl 04:00 æfingin hófst með fundi kl 05:00 og þar á eftir var úthlutað verkefnum. Sveinbjörn og Garðar fengu fljótt úthlutað verkefni uppá Fjarðarheiði, við sem vorum á Crusernum urðum að bíða fram undir kl sjö að fá verkefni og urðum við fyrir miklum vonbrigðum með það, það reyndist vera almennt verkefni en ekki jeppaverkefni. En eftir smá athugasemdir voru við settir í bið, en gáfumst upp á að bíða og fórum og leystum verkefnið og tvö önnur verkefni sem okkur voru sett. Þá kom loksins að því að við fengum verkefin við hæfi og vorum við send upp í Smjörfjöll, við fóru af stað kl 09:4 . Fórum útaf þjóðveginum við bæinn Fossvelli og þaðan uppá Smjörfjallsheiði. Þar hitum við fimm aðra jeppa sem fóru á stað um kl 06:30 um morgunninn þar kláruðum við þau vekefni sem fyrir lágu.
Næst var keyrt uppá Sandfell og niður á þjóðveg og þaðan var farið niður á Jökuldal og svo á Egilstaði og vorum við komin þar um 16:30 en þá voru sveitir að koma í hús, það beið okkar matur og drykkur. Eftir matinn var farið í sund og svo var haldið heim á leið og komið á Höfn um kl 20:30, langur og strangur dagur en engu að síður góður.
Takk fyrir okkur ,
