Björgunarfélag : Fréttir
Algeng útköll að Skyndidalsá
Björgunarfélagið var kallað út s.l. fimmtudag vegna bíls sem var kominn á kaf í Skyndidalsá. Þar voru á ferðinni franskir ferðamenn, maður og kona. Þegar björgunarsveitamenn komu á staðinn voru Frakkarnir komnir á þurrt land með aðstoð frá öðru fólki sem var í nánd við slysstað þegar bíllinn fór að sökkva. Konan slasaðist lítillega á fæti. Átta manns frá björgunarfélaginu mættu í þetta útkall og var farið á tveimur bílum, annar með bát á kerru. Spilið á Toyotunni var notað til þess að draga bílinn upp úr ánni, bílinn var ógangfær eftir volkið og var hann dreginn út að þjóðveg en þar var hann svo fluttur með vörubíl til Hafnar.
Björgunarsveitarmenn voru komnir til baka um kl 17:45. Það ber að hafa í huga á þessum árstíma þegar meiri hiti er þá eru allar jökulsár varasamar og getur vex hratt í þeim er líður á daginn, því er full ástæða til þess að fara varlega yfir jökulsár á þessum tíma árs. Útkall sem þetta er árlegur viðburður í Skyndidalsá og oft hefur munað litlu að illa færi.
