Björgunarfélag : Fréttir

Sleðamennirnir fræknu Garðar Héðinsson og Sveinbjörn Steinþórsson nýkomnir til byggða
Sleðamennirnir fræknu Garðar Héðinsson og Sveinbjörn Steinþórsson nýkomnir til byggða

Sleðamenn frá Höfn finna týnda jeppamenn

23.05.2004

Útkall berst Björgunarfélagi Hornafjarðar kl.00:20 síðustu nótt vegna manna sem farið höfðu upp á Vatnajökul en ekkert samband hafði verið við þá síðan á föstudagskvöld og óttuðust því ættingjar um afdrif þeirra. Kl.01:14 voru tveir snjósleðamenn lagðir af stað frá stjórnstöðinni á Höfn og tveir jeppar stuttu síðar, Sleðamennirnir voru komnir upp í Jöklasel kl. 02:40, þaðan sem þeir héldu strax áleiðis í Kverkfjöll en þar var talið að mennirnir gætu verið, sleðamennirnir leituðu af sér allan grun þar, fóru þaðan beint inn í Grímsfjöll þar sem mennirnir fundust heilir að húfi kl. 07:10. Mennirnir voru á Willis jeppa sem hafði bilað en þeir höfðu ekki nein fjarskiptatæki til að geta gert vart við sig.

Tveir jeppar og snjóbíll frá Hjálparsveit Skáta í Reykjavík sem voru staddir við Humarkló þar sem þeir voru á æfingu um helgina slógust í för með jeppum Björgunarfélagsins á Höfn við Jöklasel og hélt leitarhópurinn áleiðis til Kverkfjalla en var síðan snúið að Grímsfjalli þar sem mennirnir fundust. Reiknað er með að hópurinn komi til byggða um miðjan dag í dag.

Björgunarsveitir á austurlandi voru einnig kallaðar út og héldu inn að Snæfelli þar sem þeir fóru upp á jökul og héldu þaðan inn í Kverkfjöll en var snúið við þegar að sleðamennirnir frá Höfn fundu mennina.

Enn á ný hafa Björgunarsveitarmenn á Höfn sýnt að viðbragðsflýti þeirra er eindæmum góð og þrotlausar æfingar björgunarsveitarmanna skila sér þegar á hólminn er komið þar sem tími getur skipt sköpum um líf og dauða.

Guðbrandur Jóhannesson var stjórnandi leitarinnar í stjórnstöðinni á Höfn

Senda grein

 
Af bílakosti BFH Gísli Geir Að lóða er nákvæmnisvinna Hús félagsins við Álaugarveg
Þetta vefsvæði byggir á Eplica