Björgunarfélag : Fréttir
Settu upp fjórar veðurathugunarstöðvar
Það færist í aukana að félagar úr Björgunarfélagi Hornafjarðar eru beðnir um aðstoð þegar um er að ræða einhver verkefni sem tengjast jöklinum og fara þarf með gát. Í síðasta mánuði fóru þeir Jónas Friðriksson, Sveinbjörn Steinþórsson og Árni Pétur Hilmarsson sem allir eru félagar í Björgunarfélaginu upp á Breiðamerkurjökul með tveimur Hollendingum til að setja upp fjórar veðurathugunarstöðvar. Ferð sem þessi er nánast árviss viðburður og má geta þess að Björgunarfélagið vinnur náið með Jöklarannsóknarfélagi Íslands vegna verkefna sem tengjast jöklinum.
Hægt er að skoða myndir af þessari ferð með því að smella hér