Björgunarfélag : Fréttir
Æfðu björgun úr sjó
Um s.l. helgi æfðu félagar í Björgunarfélagi Hornafjarðar beitingu og meðferð slöngubáta við björgunarstörf. Æfingin fór fram í höfninni og innsiglingunni, og voru notaðir tveir slöngubátar við æfinguna. Björgunarfélagið á einn slöngubát sem er af gerðinni Zodiac Mac II en hinn bátinn lánaði Einar Björn Einarsson sem rekur ferðaþjónustuna við Jökulsárlón. Að sögn Björns Inga Jónssonar formanns Björgunarfélags Hornafjarðar tókst æfingin vel og menn fengu aðeins að blotna. Við höldum svona æfingar reglulega og núna tóku átta björgunarsveitamenn þátt í æfingunni, sem stóð í tvo daga.
Hluti af starfssemi Björgunarfélags Hornafjarðar er starfssemi unglingadeildar sem ber nafnið Brandur, þar er unglingum kennd grunnatriði í björgunarstarfi og ýmislegt fleira sem lítur að ferðalögum og útivist. Þess má geta að þessu sinni var leiðbeinandinn Stefán Rósar Esjarsson en hann er hornfirðingur í húð og hár.
