Fréttir

Útskriftarhópur FAS

19.05.2012 Fréttir : Útskrift frá FAS

Í dag fór fram fjölmennasta útskrift frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu til þessa. Alls  voru útskrifaðir 22 stúdentar, einn vélstjóri af A stigi og einn af B stigi, sjö skipstjórar af A stigi, einn húsasmiður og einn leiðbeinandi í leikskóla.
 
breytingar3

18.05.2012 Fréttir Grunnskóli : Breytingar í fullum gangi í Heppuskóla

Núna er breytingar á neðri hæð Heppuskóla komnar í fullan gang. Verkinu á að vera lokið fyrir skólabyrjun í haust. Nemendur í 10. bekk hafa flutt sig um set og nema nú fræðin í FAS en aðrir bekkir eru eftir sem áður í Heppuskóla.

 
FAS_grunnteikning

16.05.2012 Fréttir : Prófsýning og útskrift

Nú er farið að styttast í skólalok. Í dag eru síðustu prófin og á fimmtudag, uppstigningadag er frí. Prófsýning verður milli 10 og 12 föstudaginn 18. maí. Nemendur er hvattir til að koma og skoða sín próf. 
 
4. E í Ekru

14.05.2012 Fréttir Grunnskóli : Ungir og aldnir vinna saman

4. E í Grunnskólanum fór í heimsókn í Ekruna á síðasta þriðjudag og höfðu mjög gaman að. Eldri borgarar í dagvistinni kenndu krökkunum að búa til gjafakort eins og þau hafa gert um nokkuð skeið og fóru allir heim með kortin sín sælir og glaðir.

 

Viðburðir

Ásta Eiríksdóttir og Svavar Guðnason

25.05.2012 - 31.05.2012 Skemmtanir Til Ástu minnar - sumarsýning á verkum Svavars Guðnasonar listmálara

Til Ástu minnar - ný sýning á Verkum Svavars Guðnasonar í Listasafni

Til Ástu minnar – Sumarsýning á verkum Svavars Guðnasonar opnar í Listasafni Hornafjarðar klukkan 16:00. Allir velkomnir
 
Háskóli Íslands merki

16.05.2012 - 20.05.2012 Skemmtanir 20 ára afmælisveisla Háskólasetursins 16 til 18. maí í Nýheimum

Afmlisveisla Háskólasetursins í Nýheimum

10 ára afmælisráðstefna Háskólasetursins á Höfn fer fram 16 -18. maí í Nýheimum. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Mótun umhverfisstefnu í kvikum heimi“. Allir velkomnir. Í tilefni af ráðstefnunni verður sýning á nýjustu útgáfu heimildarmyndar um starfsemi Norræns netverks um eflingu umhverfisvísinda, sýningin er opin dagana 16 – 18. maí. Allir velkomnir.
 
Ferðafélags ferð Vopnafjörður. 2

12.05.2012 - 31.05.2012 Skemmtanir Ferðir Ferðafélagsins í maí

Ferðir á vegum Ferðafélags Austur - Skaftafellssýslu

12. maí Kolgrafardalur á Mýrum. Lagt af stað klukkan 10:00. 23. maí Hjólað frá vegamótum á Króksbakka að Haukafelli á Mýrum. Farið af stað klukkan 17:00. Skrá þarf í ferðina
 
Bangsasögustund 2008

10.05.2012 - 31.05.2012, kl. 14:15 Skemmtanir Síðasta sögustund á Bókasafninu

Síðasta sögustund fyrir sumarfrí

Síðasta sögustund Bryndísar á Bókasafninu fyrir sumarfrí er fimmtudaginn 10. maí klukkan 14:15. óvæntur glaðningur verður fyrir börnin.
 

Alt

 

Fréttir á landsvísu


Bloggið








20. maí 2012

Útlit síðu:

Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica